Átök um dóttur leiddu til morðs 30. júlí 2004 00:01
Hákon Eydal segist hafa myrt Sri Rahmawati í skyndilegri bræði eftir að hún hótaði að hann fengi ekki að umgangast fjögurra ára dóttur þeirra. Stríð þeirra um forræðið hafði staðið lengi en undanfarið höfðu þau reynt að endurvekja gamalt samband. Hákon barði Sri í höfuðið með þungu barefli. Hákon Eydal myrti Sri Rahmawati vegna deilna þeirra um forræði yfir fjögurra ára gamallar dóttur þeirra. Sri og Hákon höfðu deilt lengi um hvort þeirra fengi forræði yfir dótturinni. Loks var eins og eitthvað brysti sunnudagsmorguninn 4. júlí. Samkvæmt heimildum DV ber Hákon að þennan örlagamorgun hafi Sri hótaði að hann fengi ekki að umgangast dóttur sína framar. Þá hafi ofsabræði gripið Hákon og hann barið barnsmóður sína til ólífis með þungu barefli. Atlagan var svo mikil að blóð spýttist um veggi og loft. Ljóst var um leið og lögregla mætti á vettvang að fórnarlambið hefði ekki getað lifað af. Ekki undir áhrifum fíkniefna Hákon vafði líkið af Sri inn í stóran drapplitaðan sænskan póstpoka úr nyloni, setti það í ljósgrænan Nissan Patrol jeppa sinn, ók upp á Kjalarnes þar sem hann fleygði líkinu fram af klettunum í Hofsvík. Hákon þekkti til við Hofsvík þar sem hann hafði unnið í byggingum þar. Staðurinn var innan þess radíuss sem lögregla afmarkaði út frá upplýsingum sem hún hafði um ferðir Hákonar og jeppans, sunnudaginn sem Sri dó. Lögregla vímuefnanotkun ekki ástæðu ofbeldis Hákonar morguninn sem hann banaði Sri. Hann kann því einfaldlega að hafa verið frávita af bræði hafi Sri hótað því að hann fengi ekki að umgangast dóttur þeirra. Kom til Hákonar undir morgun Þau Sri og Hákon kynntust í Indónesíu árið 1998 og ákváðu þau þá að Sri flytti til Íslands með honum. Þau bjuggu saman til 2002 en þá var sambandið komið í óefni og hún flýði heimilið og fékk að dvelja hjá Félagi einstæðra foreldra frá sumrinu 2002 til haustsins 2003. Þar var hún með litlu dótturina og hluta þess tíma einnig með hin tvö börnin sín. Sri kærði Hákon fyrir ofbeldi og barsmíðar. Hákon var sýknaður eftir að aðalvitni í dómsmálinu dró framburð sinn skyndilega til baka. Á þessu ári hófu þau Sri og Hákon að draga sig aftur saman og eyddu saman dögum og nóttum. Þau fóru saman upp í sumarbústað skömmu fyrir atburðina örlagaríku í Stórholti. Sri var að skemmta sér með vinkonum sínum laugardagskvöldið 3. júlí. Seint um nóttina fór hún til Hákonar í Stórholtið. Þá hófst að nýju rifrildið um forræðið yfir dótturinni, sem lauk með hinum hörmulega hætti. Björgunarsveitarmenn hafa leitað að líkinu af Sri í nágrenni við staðinn sem Hákon segist hafa fleygt líkinu fram af. Líkið hefur enn ekki fundist.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira