Innlent

Stöðug umferð til Akureyrar

Stöðug umferð hefur verið til Akureyrar í allan gærdag og framundir morgun. Þar eru tjaldstæði að fyllast og í gærkvöldi var opnað viðbótar tjaldsvæði, sem ekki átti að opna fyrr en í dag. Þar er nú gott veður og spáin er góð. Heldur hefur létt til í Vestmannaeyjum, en þar gisti fjöldi fólks í íþróttamiðstöðinni í nótt þar sem ekki var viðlit að tjalda í Herjólfsdal í gærkvöldi vegna veðurs. Í gærkvöldi rofaði til í tvær klukkustundir og voru þá flognar margar ferðir á milli Bakkaflugvallar og Eyja og Herjólfur kom til Eyja klukkan sex í morgun með rúmlega 500 manns. Tíu minniháttar fíkniefnamál hafa komið upp, en engin sölu- eða dreifingaraðili hefur verið gripinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×