Söngvarinn lífshættulega slasaður 2. maí 2009 12:18
Bandarískur tónlistarmaður sem féll út um glugga á þriðju hæð húss við Skólavörðustíg í gærmorgun er mikið slasaður og enn í lífshættu. Maðurinn heitir Duncan McKnight og er söngvari í hljómsveitinni the Virgin Tongues sem halda átti tónleika með íslensku hljómsveitinni Singapor Sling á veitingastaðnum Sódómu í Reykjavík í kvöld. Hann og félagar hans í hljómsveitinni gistu í húsinu þar sem slysið átti sér stað. Baldvin Páll Dungal sem er vinu hljómsveitarmeðlimanna og hafði milligöngu um að hljómsveitin kæmi hingað til Íslands, segir að McKnight sé enn í lífshættu en hann sé ekki höfuðkúpubrotinn eins og áður hafi verið fullyrt í fjölmiðlum. Baldvin segir að hann og félagar söngvarans séu miður sín vegna slyssins. Þeir vaka yfir McKnight á spítalanum þar sem honum er haldið sofandi. Tvær hljómsveitir hlaupa í skarðið fyrir Virgin Tongues í kvöld, Kimano og Kid Twist sem munu troða upp á Sódómu ásamt Singapor Sling og mun allur ágóði renna til meðlima Virgin Tongues. Hljómsveitin hafði meðal annars fyrirhugað að taka upp sína fyrstu hljómplötu á meðan á dvöl þeirra stæði í Reykjavík. Hljómsveitin er skipuð þremur mönnum á aldrinum 21 til 26 ára og hefur hljómsveitin starfað í um tvö ár og gert út frá Berlín í Þýskalandi. Tveir hljómsveitarmeðlima eru frá Kaliforníu í Bandaríkjunum en sá þriðji er breskur sem ólst upp í Þýskalandi.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Fleiri fréttir Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Sjá meira