Alþjóðahús spyr um útlendingsleika 2. maí 2009 07:00 KAtla Þorsteinsdóttir Stjórnarformaður Alþjóðahúss kallar eftir skilgreiningu lögreglu á hvað það sé að vera útlendingslegur. Hún er almennt á móti skilgreiningum af þessu tagi. „
Ég vildi kalla eftir skilgreiningu frá lögreglunni, um hvað hún eigi við. Hvort „útlendingslegur“ eigi við um ljóshærða og bláeyga sænska stráka eða dökkhærða og brúna – það gæti átt við um Austfirðinga, til dæmis,“ segir Katla Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Alþjóðahúss. Hún vísar hér til eftirlýsingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðan á þriðjudag, en þar var lýst eftir þremur þjófum um þrítugt. Þeir voru sagðir útlendingslegir á að líta. Katla segist almennt séð á móti því að fólk sé skilgreint svona. „En ég get ekki séð að þetta sé móðgun við útlendinga, mér finnst nú stundum vera sagt til hróss að einhver sé útlendingslegur. Ég veit bara ekki hvað þeir eiga við, það er til fullt af myndarlegu fólki á Íslandi,“ segir hún. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að orðalagið hafi vakið upp spurningar. Lögreglan hafi ekki nein viðmið um útlendingslegheit. „Ég held að þetta sé nú bara óheppilegt orðalag, sem þarna hafi farið út frá okkur, ekkert öðruvísi en það. Lögreglan vildi koma að þeim upplýsingum, að menn töldu að þarna væru á ferðinni menn af erlendum uppruna. Það byggist nú ekki bara á útliti þeirra,“ segir hann. Slíkar upplýsingar geti hjálpað til við að koma fólki og lögreglu á sporið. - kóþ stefán eiríksson Lögreglustjóri segir umrætt orðalag óheppilegt en upplýsingar af þessu tagi geti hjálpað lögreglu að komast á sporið.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira