Óttast að kattafló sé að breiðast út 4. mars 2016 07:00 Ef dýrin klóra sér, sleikja eða bíta í húðina meira en venjulega er rétt að skoða feldinn vel. nordicphotos/gettyimages
Heilbrigðismál Kattafló hefur greinst á fleiri köttum á höfuðborgarsvæðinu og hætt við að flóin sé útbreiddari en talið hefur verið. Matvælastofnun telur þó mögulegt að uppræta flóna en til þess þarf samstillt átak hunda- og kattaeigenda. Sérstaka smitgát skal viðhafa á dýrasýningum. Fyrst varð vart við þessa óværu í febrúar þegar greindist kattafló á ketti í Garðabæ en þessi tegund flóa hefur örsjaldan fundist hér á landi. Nú er um að ræða kött af heimili í miðborg Reykjavíkur, sem fer út að vild og telur Matvælastofnun að hugsanlega sé kattaflóin orðin útbreidd meðal katta, og ef til vill hunda. Til að kanna útbreiðsluna hefur Matvælastofnun nú beint þeim tilmælum til dýralækna að þeir taki sýni af öllum köttum og hundum á tímabilinu frá 14.–28. mars, sem komið er með til þeirra og eru með einkenni í húð. Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum mun taka við sýnunum og kanna hvort í þeim leynast kattaflær. Kattaflóin getur valdið bæði dýrum og mönnum miklum óþægindum og jafnvel veikindum. Hún getur jafnframt borið með sér sýkla sem ekki hafa greinst í dýrum hér á landi, og geta valdið veikindum í köttum og jafnframt borist í fólk. Það er því mikils um vert að koma í veg fyrir að hún nái fótfestu hér á landi, er mat Matvælastofnunar. Kattafló hefur aðeins greinst í stökum tilfellum hér á landi, m.a. á hundum á árunum 1980 og 1984 og á innfluttum dýrum í einangrun árið 2012 og árið 2013. Í öllum tilvikum náðist að uppræta flóna. – shá
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira