Aðeins Íslendingum sagt upp 21. júní 2004 00:01
Aðeins Íslendingum er fórnað á niðurskurðarborðinu hjá Varnarliðinu. Nærri 150 manns hefur verið sagt upp frá því í október á síðasta ári, þar af 20 frá næstu mánaðamótum. Óbreyttum, bandarískum starfsmönnum hefur hins vegar ekki fækkað. Enn á ný hefur verið greint frá uppsögnum hjá Varnarliðinu, en í þetta sinn eiga um 20 starfsmenn von á uppsagnarbréfi. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er helmingur þeirra starfsmenn slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli, en hluti starfssemi þess verður boðinn út. Íslenskir ráðamenn hafa lagt á það áherslu, að niðurskurður komi sem jafnast niður á öllum starfsmönnum varnarliðsins. Fjöldi starfsmanna nú og fyrir ári gefur vísbendingu um að svo hafi ekki verið. Fyrsta október 2003 voru íslenskir starfsmenn varnarliðsins 897 talsins, en eru nú 751. Hermenn voru þá 1907, eru nú 1750. Mestu munar um þá sem hurfu af landi brott með kafbátaleitarvélunum. Bandarískir borgaralegir starfsmenn, t.d. kennarar, sérfræðingar og stjórnendur, voru 107. Þeir eru nú 104. Aðstandendur varnarliðsmanna eru oft í ýmsum störfum hjá varnarstöðinni, aðallega í hlutastörfum. Þeim hefur fjölgað, þeir voru 315, en hefur nú fjölgað í 119. Niðurskurður hefur því, að því er virðist, eingöngu bitnað á íslenskum starfsmönnum varnarliðsins. Flestir þeirra sem reknir hafa verið hafa starfað í skrifstofu- og stjórnunarstörfum. Þrátt fyrir að hermönnum hafi fækkað virðist enn nóg af aðstandendum til að taka að sér ýmis störf. Íslendingar, sem starfa hjá varnarliðinu, hafa ítrekað fullyrt við fréttastofu stöðvar 2 að Bandaríkjamenn hafi gengið í þau störf sem Íslendingar hafa horfið úr. Friðþór Eydal, talsmaður varnarliðsins, segir þetta ekki rétt, þau störf hafi verið lögð niður. Sumar deildir hafi hins vegar verið endurskipulagðar eftir brottrekstur, og bandarískir starfsmenn kunni að sinna einhverjum hluta þeirra verka, sem Íslendingarnir sinntu áður. Með þessum nýjustu uppsögnum er fjöldi þeirra sem misst hefur vinnuna frá því að uppsagnarbylgjan hófst kominn upp í 146, og öruggt er að framhald verður á.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira