Innlent

Jón Steinar íhugar umsókn

Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor í lögfræði, segist vera að íhuga að sækja um stöðu dómara við Hæstarétt. Hann telur það verðugt fyrir mann sem gagnrýnt hefur Hæstarétt að starfa innan réttarins. Pétur Kr. Hafstein, hæstaréttardómari, hefur lýst því yfir að hann ætli að láta af störfum 1. október næstkomandi, og er því ljóst að breytingar verða í Hæstarétti, en alls sitja þar níu dómarar. Dómarar geta hætt 65 ára og haldið fullum eftirlaunum, en Pétur kýs að hætta fyrr og halda hluta eftirlauna. Staða hæstaréttardómara verður ekki auglýst laus til umsóknar fyrr en Pétur biðst formlega lausnar, en dómsmálaráðherra skipar í stöðuna eftir umsókn Hæstaréttar, eða forseti Íslands að tillögu dómsmálaráðherra. Auglýsingafresturinn er tvær vikur, eftir birtingu í Lögbirtingablaði. Lögum samkvæmt ber að leita umsagnar Hæstaréttar um hæfi og hæfni umsækjenda til að gegna embættinu. Ekki liggur fyrir hverjir munu sækja um stöðuna, en sjö sóttu um þegar Ólafur Börkur Þorvaldsson var skipaður í embættið í fyrra. Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segist vera að íhuga að sækja um dómarastöðuna, en hann hefur aldrei sótt um stöðu Hæstaréttardómara. Jón Steinar segir að hann renni huganum til umsóknar og sé að fara yfir það gagnvart sjálfum sér. Hann hafi þó ekki tekið neina ákvörðun enn. Þá telur hann að verðugt væri fyrir mann sem hefði gagnrýnt Hæstarétt að leggja eitthvað jákvætt til málanna með störfum innan réttarins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×