Innlent

Geir H. Haarde í Eistlandi

Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, situr fyrir Íslands hönd, forsætisráðherrafund ríkja Eystrasaltsráðsins, sem haldinn er í Tallinn í Eistlandi í dag. Ráðið var sett á laggirnar árið 1992, en auk Íslands sitja meðal annars Rússar, Þjóðverjar, Norðmenn, og Eystasaltsríkin Lettland, Litháen og Eistland. Markmið ráðsins er að ræða sameiginleg hagsmunamál ríkjanna, á borð við orkumál, menntun og félagsmál og málefni varðandi kjarnorkuúrgang. Á fundinum í dag verður sérstaklega rætt um stækkun Evrópusambandsins og áhrif hennar á lönd utan sambandsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×