Innlent

Dvdmyndir.com ákærð

Forsvarsmenn vefsins dvdmyndir.com voru kærðir til lögreglu þann 16. júní af SMÁÍS, samtökum myndrétthafa. Samkvæmt fréttatilkynningu frá samtökunum hefur þessi síða verið starfrækt undanfarna mánuði en á henni á að vera hægt að kaupa DVD myndir sem sumar hverjar eigi enn eftir að sýna í kvikmyndahúsum. Aðrar sé verið að sýna í kvikmyndahúsum þessa dagana eða séu nýlega komnar út á DVD hér á landi. Meðal þeirra mynda sem seldar hafa verið á þessari síðu eru "Troy", "Kill Bill Vol II", "Monster", "Bad Boys II" og "Shrek II" en sú síðastnefnda er ekki áætluð til sýningar í kvikmyndahúsum hér á landi fyrr en um miðjan júlí nk. Félagsmenn SMÁÍS hafa einkarétt til dreifingar á yfirgnæfandi hluta kvikmynda- og sjónvarpsefnis og tölvuleikja sem eru á íslenskum markaði. Segir í tilkynningu samtakanna að aðildarfélagar þess hafi ekki gefið leyfi fyrir innflutningi myndanna sem seldar eru á síðunni og að þeir hafi í yfirgnæfandi tilvikum keypt sýningarrétt þeirra mynda sem boðnar eru til kaups á vefnum af framleiðendum myndanna. Þar sem sumar þessara mynda hafa ekki enn verið gefnar út á DVD diskum af framleiðanda þeirra er talið ljóst að um ólögleg eintök sé að ræða. Þá hafa sýnishorn af myndum sem eru til sölu á vefnum www.dvdmyndir.com komist í hendur SMÁÍS og ljóst að þrátt fyrir að sumar þessara mynda hafi komið út hér á landi sé um að ræða ólöglegar útgáfur af myndunum sem upprunnar eru í Asíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×