Peningaverðlaun fyrir þá sem hjálpuðu við að finna fjórhjólin 25. febrúar 2009 16:41 Hér má sjá mynd af fjórhjólunum sem var stolið.
Jakob Sigurðsson rekur fyrirtækið Fjórhjólaævintýri ásamt föður sínum og bróður. Fyrir helgi var fimm fjórhjólum stolið frá fyrirtækinu sem metin eru á rúmlega ellefu milljónir króna. Feðgarnir auglýstu þegar í stað eftir hjólunum sem nú eru komin í leitirnar en lögregla handtók sex aðila í tengslum við málið. Jakob segir feðgunum létt og þeir ætli að hafa samband við þá sem hjálpuðu við að upplýsa málið. Feðgarnir höfðu nefnilega lofað peningaverðlaunum fyrir vísbendingar sem hjálpuðu við leitina. „Þetta er mikill léttir þó enn vanti töluvert af verðmætum en hjólin voru aðal málið," segir Jakob en strax og þeir auglýstu eftir hjólunum fóru þeim að berast ábendingar sem þeir síðan komu til lögreglu. Það sem hinsvegar kom mönnum á sporið var þegar maður sem hafði leigt út flutningabíl kíkti inn og sá fjórhjólin. „Hann hafði leigt bílinn út og hélt að það væri búslóð í honum," segir Jakob en þrjú af hjólunum voru í bifreiðinni. Í kjölfarið af því fundust síðan hin hjólin og mennirnir sex voru handteknir. Jakob segir þó að fyrirtækið hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni þar sem leigja þurfti auka hjól til þess að keyra hópa um helgina. „Þetta hafði engin áhrif á reksturinn þannig séð, við stoppuðum aldrei og keyrðum alla helgina. Það var hinsvegar kostnaður við að leigja auka hjól til þess að bæta í flotann. Það þýðir ekkert að hætta," segir Jakob. Feðgarnir keyra hópa um Reykjanesið á fjórhjólum og ætla að halda áfram á fullu. „Við viljum koma þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu við leitina. Við munum hafa samband við þetta fólk útaf peningaverðlaununum sem við höfðum lofað, við svíkjum það ekkert."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira