Gagnrýna seðlabankafrumvarpið og verktakakaup Guðlaugs 25. febrúar 2009 11:57
Frjálshyggjufélagið furðar sig á þeim fljótfærnisvinnubrögðum sem minnihlutastjórn VG og Samfylkingar vill viðhafa við breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands. Jafnframt gagnrýnir félagið óþarfa áherslu Guðlaugs Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, í ráðgjöf utan ráðuneytisins. Heimilin bíði eftir aðgerðum Félagið segir að samkvæmt athugasemdum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabankans sé ljóst að frumvarpið sé hroðvirknislega unnið og eingöngu ætlað til að setja af einn embættismann. ,,Sú 80 daga minnihlutastjórn sem hugðist bjarga landinu hefur eytt miklu púðri í að setja af þá embættismenn sem ekki hæfa þeirra skoðunum. Á meðan bíða heimilin í landinu eftir aðgerðum í efnahagsmálum," segir í ályktun félagsins.Vilja skera niður í ríkisfjármálum Frjálshyggjufélagið leggur til að minnihlutastjórnin snúi sér að brýnni verkefnum eins og að skera niður í ríkisfjármálunum, minnka álögur á skattborgara og afnema gjaldeyrishöft. Félagið fagnar félagið hugmyndum minnihlutastjórnarinnar um að leggja niður Varnarmálastofnun og hvetur ríkisstjórnina til að ganga skrefið til fulls.Eyði ekki almannafé í eigin þágu ,,Ljóst er að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gaf ráðherrum sínum nokkuð lausan tauminn í ríkisfjármálunum og sést það best á 24 milljóna króna óþarfa eyðslu fyrrverandi heilbrigðisráðherra í ráðgjöf utan ráðuneytisins. Af því fóru 2,5 milljónir í framkomunámskeið fyrir heilbrigðisráðherra og forstöðumenn heilbrigðisstofnana," Þetta harmar Frjálshyggjufélagið og brýnir fyrir komandi ríkisstjórnum þessa lands að eyða ekki peningum skattborgara í eigin þágu.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Sjá meira