Innlent

Fjögur innbrot í höfuðborginni í nótt

Fjögur innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust allir þjófarnir undan. Farið var inn í verslunina Vísi við Laugaveg, brotinn var upp sjálfsali við þvottastöðina Löður við Stekkjabakka, hljómflutningstækjum stolið úr menningamiðstöðinni Gerðubergi og tveimur tölvum var stolið af skrifstofu Norræna félagsins við Óðinsgötu. Þessi innbrotahrina kemur í kjölfar annarrar í fyrrinótt, þegar fimm innbrot voru framin og telur lögregla líklegt að sömu menn hafi verið á ferð í nokkrum tilvikanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×