Stjórnmálamaðurinn þvældist fyrir seðlabankastjóranum 25. febrúar 2009 12:52 Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri færði í Kastljósviðtali í gærkvöldi bestu rök sem hingað til hafa komið fram um hvers vegna stjórnmálamaður á ekki að vera seðlabankastjóri, segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Ljóst sé að ríkisstjórnin hafi ekki tekið mark á aðvörunum Davíðs, þar sem hún hafi verið að hlýða á málflutning stjórnmálamannsins, ekki seðlabankastjórans Davíðs. Þá segir hann Davíð hafa gefið arftaka sínum Geir Haarde falleinkunn. Davíð Oddsson var í ítarlegu viðtali við Sigmar Guðmundsson í Kastljósi í gærkvöldi. Davíð fór vítt um sviðið og kvaðst hafa ítrekað varað fyrrverandi ríkisstjórn við því að bankakerfið gæti hrunið. ,,Það er greinilega alveg ljóst að ríkisstjórnin og þar á meðal forsætisráðherra, og hans samflokksmenn í ríkisstjórninni, hafi ekki tekið mikið mark á þessum varnaðarorðum. Ég hef það á tilfinningunni að ríkisstjórnin hafi þarna verið að hlusta á stjórnmálamanninn Davíð Oddsson en ekki seðlabankastjórann Davíð Oddsson." Spurður hvort að stjórnmálamenn ættu ekki að hafa hlustað á viðvaranir Davíðs þrátt fyrir fortíð hans í stjórnmálum telur Einar að fréttamenn þurfi að ganga á ráðherra seinustu ríkisstjórnarinnar og fá atburðarásina staðfesta. Þess má geta að fréttastofa hefur í morgun reynt ítrekað að ná í Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, en auk þess Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur varaformann Sjálfstæðisflokksins, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur formann Samfylkingar og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Sjá meira