Innlent

Endurskoðun kjarasamninga frestað fram í lok júní

Á fimmta tímanum í dag skrifuðu forystumenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins undir samkomulag um frestun á endurskoðun kjarasamninga til loka júnímánaðar. Í fréttatilkynningu frá ASÍ segir að þrátt fyrir frestun sé í samkomulaginu ákvæði um að lágmarkslaun hækki í 157 þúsund 1. mars 2009 og önnur ákvæði samninganna koma til framkvæmda, meðal annars lenging orlofs. Samningsaðilar telja frestunina mikilvægt framlag til stöðugleika í efnhagslífinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×