Lífið

Ómáluð og óþekkjanleg

MYNDIR / COVER MEDIA
Kántrísöngkonan LeAnn Rimes skottaðist um Los Angeles í vikunni í íþróttafötum og algjörlega ómáluð. Er það skemmtileg tilbreyting því almenningur er vanur því að sjá stjörnurnar uppstrílaðar daginn út og daginn inn.

LeAnn er nýkomin úr fríi í Mexíkó með eiginmanni sínum Eddie Cibrian. LeAnn fagnaði þrítugsafmæli sínu í ágúst í fyrra, einum degi áður en hún skráði sig í meðferð fyrir kvíðasjúklinga.

Fersk.
Það var ekki á það bætandi þegar Brandi Glanville, fyrrverandi eiginkona Eddie, talaði opinskátt í fjölmiðlum um hve lítið álit hún hefði á LeAnn.

Í X Factor-partíi.
Nú er hins vegar allt á uppleið hjá söngkonunni og vonandi verður þetta ár betra en það fyrra.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.