Hælisleitandi í hungurverkfalli: Mótmælt í Reykjanesbæ 11. maí 2009 10:32
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan gistiheimilið Fit í Reykjanesbæ í dag klukkan ellefu til þess að vekja athygli á málum Mansri Hichem, sem er á 19. degi hungurverkfalls. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að ástæða mótmælanna sé viðbragðsleysi stjórnvalda við aðgerðum mannsins auk þess sem stjórnvöld eru sökuð um að hafa sýnt almennt skeytingarleysi um mannréttindi og velferð flóttamanna sem hingað hafa leitað. „Útlendingastofnun hefur með starfsemi sinni síðustu mánuði, og líklega síðustu ár, gerst sek um brot á hinum ýmsu landslögum, mannréttindasáttmálum sem bundnir eru í lög, sem og alþjóðlegum samningum sem Ísland er aðili að, t.a.m. Dyflinnarreglugerðinni, þeirri sömu og Útlendingastofnun hefur notað sem útskýringu á og afsökun fyrir illri meðferð flóttamanna. Ekkert í reglugerðinni kveður þó á um slíka meðferð og fram kemur í formála að henni að tilgangur hennar er að sporna við ábyrgðar- og skeytingarleysi viðkomandi ríkja í garð flóttamanna, og stuðla að því að þeir eins og aðrir menn fái notið mannréttinda sinna," segir í tilkynningunni. „Tími og rúm eru óaðskiljanleg, og án staðar í heiminum hefur tímalengd lífa þessara manna ekki nokkra þýðingu," segir ennfremur. „Mansri Hichem hefur verið látinn bíða á Íslandi í tvö ár, án tækifæris til þess að taka þátt í samfélagi manna, án tækifæris til að vinna eða halda áfram lífi sínu. Í tvö ár hefur hann verið látinn bíða í örvæntingarfullri óvissu frá degi til dags um hvort nú komi röðin að honum, að nú verði hann sendur burt, á meðan félagar hans á gistiheimilinu hverfa út í óvissuna einn á fætur öðrum, teknir höndum af lögreglunni, brottreknir og sjást ei meir." „Eftir tvær vikur án matar byrja innri líffæri að skemmast, endanlega eyðileggjast. Eftir þrjár vikur er ástandið orðið lífshættulegt. Mansri er að nálgast þrjár vikur, hefur mikla verki í hjarta og nýrum og er hættur að geta staðið uppréttur. Við berum ábyrgð á þessum manni, líka skv. Dyflinnarreglugerðinni en í henni segir að ef ríki telur ábyrgð liggja hjá öðru ríki, skuli krafan um það að vera lögð fram innan þriggja mánaða frá því að umsókn um hæli er lögð fram. Við berum ábyrgð á því að mál Mansri fái sanngjarna umfjöllun og við berum ábyrgð á því að hann fái notið mannréttinda sinna, hvernig sem á það er litið," segir einnig í tilkynningunni sem send var öllum þingmönnum landsins. Bréfinu lýkur á eftirfarandi orðum: „Samfélagsleg ábyrgð liggur hjá hverju okkar, en þú ágæti þingmaður berð persónulega meiri ábyrgð, kosinn til að gæta hagsmuna okkar og kosinn til þess að ganga í forsvari fyrir þessa þjóð. Ég skora á þig að bregðast við þeirri ábyrgð af mannúð og manngæsku, og gerast ekki ábyrgur fyrir dauða Mansri Hichem."
Tengdar fréttir Í hungurverkfalli í fimmtán daga Verulega er farið að draga af alsírskum flóttamanni sem hefur verið í hungurverkfalli í fimmtán daga, en mál hans hefur ekki verið tekið formlega fyrir í dómsmálaráðuneytinu. Maðurinn, sem dvelur á heimili fyrir hælisleitendur á Suðurnesjum, er orðinn máttfarinn vegna næringarskorts. 7. maí 2009 22:11 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira
Í hungurverkfalli í fimmtán daga Verulega er farið að draga af alsírskum flóttamanni sem hefur verið í hungurverkfalli í fimmtán daga, en mál hans hefur ekki verið tekið formlega fyrir í dómsmálaráðuneytinu. Maðurinn, sem dvelur á heimili fyrir hælisleitendur á Suðurnesjum, er orðinn máttfarinn vegna næringarskorts. 7. maí 2009 22:11