Innlent

Uvg sakna Kolbrúnar af þingi

Kolbrún Halldórsdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir
Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Uvg í kvöld en Kolbrún lætur nú af þingmennsku.

Þá segir ennfremur að Kolbrún sé hugsjónakona og hafi verið mikill brautryðjandi í íslenskum stjórnmálum undanfarin tíu ár. Hún hafi alltaf látið hugsjónir sínar ráða för í málflutningi sínum og aldrei látið mótlætið buga sig, þó það hafi oft á tíðum verið gríðarlegt.

„Ung vinstri græn munu sakna Kolbrúnar af Alþingi Íslendinga og vona að þeir sem á eftir henni koma muni taka heiðarleika hennar, kjark og baráttuanda sér til fyrirmyndar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×