Innlent

Kross tálgaður af Þórbergi

Á morgun verður opnuð merkt gönguleið í Staðarfjalli í Suðursveit og afhjúpaður kross, sem Þórbergur Þórðarson rithöfundur tálgaði, í Garðhvammi við Klukkugil. Stutt dagskrá verður við byrjun gönguleiðarinnar og síðan verður farið upp í Garðhvamm en þangað er um klukkustundar ganga. Þar verður einnig stutt dagskrá en að því loknu verður gengið að barmi Klukkugils þar sem Ragnheiður Steindórsdóttir mun lesa upp úr bók Þórbergs, Í Suðursveit. Fyrir hundrað árum sat Þórbergur Þórðarson yfir fráfærulömbum, ásamt fleiri ungum mönnum, undir Staðarfjalli eða Papbýlisfjalli sem blasir við þegar ekið er vestur Steinasand, framhjá Kálfafelli. Hann tálgaði í þessari hjásetu lítinn kross úr birkigrein, fór með upp í fjallið í svonefndan Garðhvamm og reisti hann þar. Kross Þórbergs hefur svo varðveist undir tveimur hellum í Garðhvammi í heila öld. Smalamenn reistu  krossinn alltaf við á göngum sínum um fjöllin og létu hugann reika til liðins tíma. Enginn veit af hverju Þórbergur, þá sextán ára gamall, tálgaði krossinn eða kaus að skilja hann eftir í óbyggðum. Nú sjást aðeins nokkrar tréflísar undir hellunum og á að bjarga þeim frá eyðingu og varðveita þær á Þórbergssetri þegar fram líða stundir. Athöfnin hefst klukkan 14 í Staðarfjalli en mæting er við sumarhúsin á Klifatanga klukkan 13. Aðeins er fært á jeppum í Staðarfjall og verður fólk ferjað inn eftir, ef þörf krefur. Fréttavefur Hornfirðinga greinir frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×