Draugakastali í Djúpavík 24. júlí 2004 00:01
Sex þúsund fermetra síldarverksmiðja, sem var á sínum tíma stærsta steinsteypta hús í Evrópu og miðstöð atvinnulífs á Vestfjörðum, stendur nú eins og draugakastali í Djúpavík á Ströndum. Stöð 2 fór og skoðaði þennan yfirgefna minnisvarða um gullár síldarævintýrsins - sem er reyndar alls ekki líflaus lengur. Það var fyrir 70 árum sem síldarævintýrið hið síðara hófst í Djúpavík í Reykjafirði á Ströndum. Vinnufólk streymdi þangað alls staðar af landinu og var reist mikil síldarverkmiðja og síldarsöltun. Aðeins um fimmtán árum seinna hvarf síldin og þá fór að síga á ógæfuhliðina. Enn má sjá í Djúpavík menjar þessa mikla athafnalífs. Í fjörunni liggur gamalt skip og verksmiðjan rís eins og yfirgefinn kastali yfir fjöruborðinu og þar inni má nánast heyra raddir þeirra fjölmörgu verkamanna sem þarna unnu. Ásbjörn Þorgilsson, staðarhaldari á Djúpavík, segir þetta vera stórmerkilega sögu því húsið, sem verksmiðjan var í, hafi einu sinni verið stærsta steinsteypta húsið í Evrópu, þ.e. algjörlega steypt úr sementi og möl. Nú stendur yfir ljósmyndasýning í verksmiðjunni með myndum af gullöld Djúpavíkur. Verksmiðjan var öll hin vandaðasta og búin fullkomnustu tækjum. Ásbjörn segir að það að hefja þessa síldarvinnslu árið 1934 sé álíka átak og ef Íslendingar hefðu byggt álverið sjálfir árið 1962. Þar sem síldarsöltunarstúlkurnar bjuggu á blómatíma staðarins, í Kvennabragganum svokallaða, hefur Ásbjörn og fjölskylda rekið hótel í nokkur ár svo þessi yfirgefni staður hefur gengið í endurnýjun lífdaga.
Fréttir Innlent Mest lesið Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Erlent Með töskurnar fullar af marijúana Innlent Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Innlent Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Innlent Fleiri fréttir Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Sjá meira