Innlent

Markar ekki vatnaskil

Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir ráðstefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins sem lauk á fimmtudag ekki marka nein vatnaskil í umræðunni um hvalveiðar í atvinnuskyni. Mikið starf sé enn fyrir höndum til að fá hvalveiðibanninu aflétt. Árni segir umræðuna núna miklu jákvæðari og skynsamlegri en áður. Honum finnst hins vegar of snemmt að segja til um það núna hvort ráðstefnan marki vatnaskil í málinu. Aðspurður hvort hann telji að markaður sé fyrir hvalaafurðir, m.a. með hliðsjón af ummælum formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands í fréttum í gær um að hvalveiðum sé sjálfhætt því ekki sé hægt að selja kjötið, segir Árni ástæðulaust að vera með fullyrðingar sem þessar. Það skipti máli að stjórn sé á hvalveiðum og hvort markaður sé fyrir afurðirnar komi í ljós síðar. Árni kveðst því ekki hafa áhyggjur af þessu núna.      Árni segist ekki vita hvenær Íslendingar hefji hvalveiðar á ný en vonar að ráðstefnan færi okkur nær því takmarki. Aðspurður hvort til greina komi að hefja veiðar án þess að samþykki Alþjóðahvalveiðiráðsins liggi fyrir segir Árni að Íslendingar hafi fyrirvara gagnvart hvalveiðibanninu. Frá lagalegu sjónarmiði væri það því hægt þegar fyrirvarinn tekur gildi en ráðherrann segir engar ákvarðanir hafa verið teknar í því sambandi.     Hægt er að hlusta á viðtal við Árna Mathiesen úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hljóðhlekkinn hér að neðan. Hægt er að horfa á frétt Stöðvar 2 um málið með því að smella á myndhlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×