Innlent

Tvítug stúlka nefbraut strák

Ólafsfjörður.
Ólafsfjörður.

Tvítug stúlka nefbraut jafnaldra sinn fyrir utan heimahús á Ólafsfirði í lok desember á síðasta ári. Stúlkan, sem hefur meðal annars keppt í Fittness, játaði brotin skýlaust á sig.

Héraðsdómur tók til greina að stúlkan hefur ekki áður komist í kast við lögin og að auki er hún ung að árum. Þá tekur dómurinn tillit til þess að ýfingar hafi verið á milli þeirra sem var til þess að hún gaf piltinum hraustlegt spítalavink.

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi stúlkuna því í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Refsingin skal látin niður falla að tveimur árum haldi hún almennt skilorð. Auk þess skal hún greiða fimm þúsund krónur í málskostnað.

Vikan virðist þó ekki vera sú besta fyrir piltinn því hann þarf að mæta aftur í héraðsdóm á morgun þar sem hann hefur verið ákærður fyrir fíkniefna- og umferðalagabrot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×