Erlent

Öflugar sprengingar á Indlandi

Þrjátíu eru látnir eftir röð sprenginga í miðborg Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, rétt upp úr hádegi. Fyrsta sprengingin mun hafa orðið á fjölsóttum markaði skammt frá meginjárnbrautarstöðinni ekki langt frá þekktum hótelum. Skömmu síðar sprakk önnur sprengja á öðrum markaði. Þriðja sprengjan sprakk í iðnaðarhverfi í suðurhluta borgarinnar. CNN segir að varað hafi verið við sprengjunum, en þrír dagar eru þar til helsta hátíð hindúa á Indlandi, Diwali, hefst, og því var fjölmenni á mörkuðunum að kaupa gjafir handa vinum og ættingjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×