Fastar í neti skúrka 24. júlí 2004 00:01
Stígamót þekkja dæmi um að starfsemi tengd nektardansi jaðri við að vera mansal og í sumum tilvikum telur Rúna Jónsdóttir, talskona Stígamóta, að um raunverulegt mansal hafi verið að ræða. Hún segir dálítið erfitt að alhæfa um þessa hluti, en hefur eftir erlendum sérfræðingum "sem best þekkja til" að samingar stúlkna við eigendur nektarstaða hér og Stígamót komust yfir fyrir nokkru, séu skýr dæmi um mansal. "Hér hefur hins vegar ekki verið litið svo á að um mansal hafi verið að ræða," segir Rúna, en bendir um leið á að þessar nektardansmeyjar séu alla jafna mjög háðar vinnuveitendum sínum fjárhagslega. "Þá er það í rauninni mansal þó svo að stjórnvöld hafi ekki litið svo á," segir hún. "Það eitt að stúlkunum er lánað fyrir fari hingað þýðir að þær eru orðnar háðar þessum mönnum." Eins segir Rúna ljóst að verið sé að nýta sér bágar aðstæður margra stúlkna sem stunda hér nektardans. "Í Palermosamþykkt Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar um alþjóðlega glæpastarfsemi, er tekið sérstaklega fram að um mansal sé að ræða, jafnvel þó fyrir liggi samþykki fórnarlambsins, svo fremi sem verið er að nýta sér bágar aðstæður fólks," segir hún og bendir á að það eitt að vera atvinnulaus í Eystrasaltslöndunum sé ávísun á bágar aðstæður. "Svo spilar fleira inn í. Stúlkurnar eru gerðar samsekar í undanskoti skatta og þannig skíthræddar. Það er margt sem er notað til að festa þær í neti þessara skúrka." Rúna segir að Stígamót hafi komið að málum nokkurra þessara stúlkna og einnig fengið til sín konur sem lýst hafi aðstæðum hér. Hún segir hins vegar að í seinni tíð hafi dregið úr tengslum Stígamóta við erlendar konur í klámiðnaði. "Þeir sem eiga hagsmuna að gæta vita hvað við erum að fást við og passa vel upp á að stúlkurnar komist ekki í samband við okkur," segir hún og bætir við að einnig kunni stúlkum í þessum geira að hafa fækkað vegna orðinna breytinga á laga- og reglugerðaumhverfi. "En ég held að mikil gerjun sé í þessari starfsemi, sem hvorki ég né nokkur annar hefur yfirlit yfir." Rúna segir brýnt að breyta lögum á þann veg að konum sé hjálpað að komast út úr klámiðnaði án þess að þær þurfi endilega kæra vinnuveitendur sína og að þær eigi kost á sérstakri vitnavernd.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira