Innlent

Samningsferlið við ESB krufið

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna boðar að umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði send til Brussel í sumar.

Á málfundi sem haldinn verður í Odda í hádeginu í dag verður kynning á nýútkominni bók sem ber heitið „Inni eða úti: Aðildarviðræður við ESB". Í bókinni er lýsing á því ferli sem fer í gang er ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu og fjallað um lærdóma sem draga má af fyrri stækkunarlotum sambandsins.

Á málfundinum segir höfundur bókarinnar, Auðunn Arnórsson, stjórnmálafræðingur og blaðamaður, nokkur orð auk þess sem Magnús Árni Magnússon, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, flytur erindi þar sem hann leggur út af efni bókarinnar.- gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×