Tvær handtökur til viðbótar í Danmörku 29. október 2005 12:41
Tveir í viðbót hafa verið úrskurðaðir í varðhald í Danmörku grunaðir um þátttöku í skipulagningu hryðjuverkaárásar í Evrópu. Danska lögreglan útilokar ekki að hópurinn hafi ætlað að láta til skarar skríða í Danmörku. Samkvæmt tilkynningu frá dönsku lögreglunni í morgun verða manneskjurnar tvær yfirheyrðar í dag, sakaðar um að hafa aðstoðað fjórmenninga, sem fyrir sitja í varðhaldi, við að skipuleggja hryðjuverkaárás. Ekki er greint frá kyni né aldri þessara tveggja, en tekið fram að tengsl þeirra við hina fjóra séu þess háttar að nauðsynlegt hafi verið að úrskurða fólkið í varðhald. Upphaf málsins má rekja til rannsókar yfirvalda í borginni Sarajevó í Bosníu í síðustu viku, þar sem sænskur ríkisborgari og Tyrki voru handteknir. Tyrkinn er búsettur í Danmörku og danskir fjölmiðlar hafa eftir bosnísku dagblaði að Svíinn sé fæddur í múslimskum hluta Serbíu. Vitnað er í upplýsingar blaðsins Slobodna Bosna frá heimildum innan innan lögreglunnar þar í landi, sem segja mennina hafa tekið upp á myndband bænastund. Þar biðja þeir Allah um fyrirgefningu, þar sem þeir ætli sér að fremja sjálfsmorð sem sé synd samkvæmt Kóraninum. Um þrjátíu kíló af sprengiefni eru sögð hafa fundist í fórum mannanna í Bosníu. Tengsl þeirra við hóp í Danmörku leiddu til aðgerða dönsku lögreglunnar á fimmtudag, sem handtók fjóra unga menn á aldrinum sextán til tuttugu ára í hýbýlum þeirra á Kaupmannahafnarsvæðinu. Tveir voru handteknir á heimili foreldra sinna í Brøndby, og segja nágrannar í viðtali við blaðið Politiken að drengirnir hafi virkað hinir rólegustu og síst hefði fólk grunað þá um að skipuleggja hryðjuverk. Danska lögreglan ítrekar þó í tilkynningu í morgun eftir handtöku tveggja til viðbótar hér í Danmörku, að hvorki vopn né sprengiefni hafi fundist á heimili fólksins. Ekki er þó útilokað að hópurinn hafi verið að skipuleggja árás í Danmörku.
Erlent Fréttir Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira