Greniskógi rutt burt vegna snjóflóðagarða 10. maí 2012 09:00 Vaxin hlíð Snjóflóðagarðarnir eiga að rísa í hlíðinni þar sem greniskógurinn sést í fjarlægð hægra megin á myndinni. Fréttablaðið/Egill „
Ef þetta nær fram að ganga mun þetta verða eitt versta umhverfisslys Íslandssögunnar og þar með afskræming á okkar fallega þorpi,“ segir Jónas Þór, íbúi á Patreksfirði, um fyrirhugaðar framkvæmdir við snjóflóðagarða ofan sjúkrahúss og grunnskóla bæjarins. Ofanflóðasjóður ákvað að láta reisa garðana eftir að snjóflóðahættan þarna var metin fyrir nokkrum árum. Til stendur að hefja framkvæmdir í sumar. Jónas hefur skrifað Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra bréf vegna málsins. Hann gagnrýnir fyrirhugaðar framkvæmdir harðlega og segir fáránlegt að Umhverfisstofnun hafi ekki séð ástæðu til þess að fara í umhverfismat áður en þær voru samþykktar. Jónas segir umhverfisspjöllin sem garðarnir munu valda gífurleg, en meðal annars þarf að ryðja burt þéttum skógi sem starfsmenn sjúkrahússins hafa ræktað í hlíðinni síðan árið 1950. „Það hefur aldrei fallið snjóflóð í hlíðinni á sögulegum tíma. Hún er bara þannig að þar festir aldrei snjó,“ segir hann. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir ákvörðunina algjörlega í höndum ríkisvaldsins og byggða á hættumati frá ofanflóðavörnum. Hún segir að vísað sé til verstu aðstæðna sem orðið geti og málið ekki í höndum bæjarins. „Hver vill taka þá ákvörðun um að fara ekki í ofanflóðavarnir þegar flóð fellur svo á sjúkrahúsið og grunnskólann? Persónulega finnst mér veik rök að verja einhverjar hríslur. Þetta er áhætta sem við getum ekki tekið,“ segir Ásthildur. Úlfar Thoroddsen, forstjóri Sjúkrahússins á Patreksfirði, segir skóginn vera mestu eftirsjána, en það verði svo að vera. Framkvæmdir vegna snjóflóðagarða hafi legið fyrir þegar hann var í sveitarstjórn á árunum 2006 til 2010. „Umhverfisspjöll fylgja öllum svona görðum,“ segir hann. „Húsin standa svo nálægt fjallinu að nauðsynlegt er að verja þau. Við því er ekkert að segja.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira