Innlent

Ný tækni frá 3X á Ísafirði tífaldar verðmæti fiskafurða

Hátæknifyrirtækið 3X á Ísafirði hefur þróað aðferðir til að tífalda verðmæti afurða með því að auka nýtingu hráefnis. Ný tækni frá fyrirtækinu gerir jafnframt mögulegt að mæta samdrætti í afla með því að þýða heilfrystan fisk og vinna afurðir úr honum. Tilraunir sem 3X hefur gert með fiskiðju Vísis hf. á Þingeyri hafa gengið framar vonum.



Að sögn Jóhanns Jónassonar framkvæmdastjóra hjá 3X Technology er samdráttur í aflaheimildum högg fyrir alla sem tengjast fiskvinnslu og útgerð á Íslandi. Hann segir að tækifærin í greininni séu núna í nýsköpun og þróun. Jóhann segir að 3X hafi þróað marningskerfi fyrir fiskhryggi og próteinkerfi sem bæta nýtingu hráefna og tífalda verðmæti á aukaafurðum.

Fyrirtæki í vinnslu á Vestfjörðum óttast mjög löng hlé vegna þess að afli berist ekki á land í framhaldi af skerðingu á veiðiheimildum. Þá hafa áherslur í vinnslu afurða breyst, sem hafa fækkað störfum í landi, en fiskur er nú í auknum mæli unnin um borð í fiskiskipum.

Á Ísafirði voru áður unnin um hundrað tonn af þorski á dag en núna er þar nærri engin vinnsla. Með aðferðum 3X skapast sá möguleiki að fyrirtæki á Ísafirði, sem annars staðar á landinu, geti hafið vinnslu á heilfrystum fiski sem veiddur er hér við land eða veiddur af öðrum, til dæmis Rússum, og fluttur inn.

Ný hátæknikerfi frá 3X til að þýða heilfrosin fisk gera þannig fyrirtækjum kleift að halda vinnslunni gangandi þegar hráefni berst ekki á land með öðrum leiðum. Nýting með aðferðum 3X er afar góð að sögn Vísis-manna.

Viðar Friðgeirsson, rekstrarstjóri Vísis hf. á Þingeyri segir að tilraunir með uppþýðingu hafi tekist vel og þetta sé kjörin leið til að brúa bilið þegar engin afli berist á land. Undir það tekur Arngrímur Friðgeirsson vinnslustjóri hjá Vísi hf. en hann segir að aðalmarkmiðið sé nú að auka verðmæti afla með betri nýtingu.

Jóhann Jónasson, framkvæmdastjóri hjá 3X segir að fyrirtæki í sjávarútvegi verði nú að snúa saman bökum í skerðingunni til að auka nýtingu á hráefni með því að bæta ferla í land- og sjóvinnslu. Áherslurnar liggi í aukinni sjálfvirkni til að bæta afköst og auka nýtingu vinnslunnar.

3X hefur verið í örum vexti undanfarin ár og fékk til dæmis útflutningsverðlaun forseta Íslands í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×