Köttur hámar í sig kanínuhræið Kjartan Atli Kjartansson skrifar 15. september 2014 16:36
Kanínuhræið, sem Kristín Ása Einarsdóttir birti mynd af í gærkvöldi á Facebook, er enn í Öskuhlíðinni, þegar þetta er skrifað. Þegar blaðamaður og ljósmyndari Vísis voru á staðnum um klukkan 14:00 í dag var þar mættur köttur og var hann að gæða sér á hræinu. Kötturinn virtist nokkuð vel haldinn. Hann var ekki með ól og haltraði um svæðið; var gæfur og vildi nálgast blaðamann og ljósmyndara milli þess sem hann nartaði í hræið. Vísir greindi frá því í morgun að Árni Stefán Árnason, lögmaður sem sérhæft hefur sig í réttindum dýra, telji að sá sem hafi rist kanínuna á hol gæti átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsi. Árni taldi einsýnt að kanínan hafi verið drepin af mannavöldum og þá rist á hol. Birgir Hauksson veiðimaður hefur hins vegar bent á að vel geti verið að um sjálfdautt dýr sé að ræða sem þá hrafn hafi kroppað í, en hrafninn byrjar ætíð á innyflunum, þá er hann kemst í ferskt hræ. Haft var samband við Reykjavíkurborg, með það að markmiði að komast að því hvenær hræið yrði fjarlægt. Blaðamanni var gefið samband við meindýraeyði Reykjavíkurborgar. Hann hafði ekkert heyrt af málinu. Hér að ofan má sjá myndband af því þegar kötturinn borðar hræið. Rétt er að vara viðkvæma við myndbandinu.
Tengdar fréttir Hörð viðbrögð vegna kanínudrápsins í Öskjuhlíð Margir eru reiðir vegna þess að kanína var rist á hol og hræið skilið eftir í Öskjuhlíð um helgina. Málið hefur verið mikið rætt á samskiptamiðlum. 15. september 2014 13:41 „Sá sem gerði þetta gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi“ Hræ af kanínu sem var búið að rista á hol fannst í Öskjuhlíð í gær. Lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í rétti dýra segir þetta vera stórfellt brot. 15. september 2014 11:37 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Hörð viðbrögð vegna kanínudrápsins í Öskjuhlíð Margir eru reiðir vegna þess að kanína var rist á hol og hræið skilið eftir í Öskjuhlíð um helgina. Málið hefur verið mikið rætt á samskiptamiðlum. 15. september 2014 13:41
„Sá sem gerði þetta gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi“ Hræ af kanínu sem var búið að rista á hol fannst í Öskjuhlíð í gær. Lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í rétti dýra segir þetta vera stórfellt brot. 15. september 2014 11:37