Los Angeles Galaxy 11. janúar 2007 16:20 Bandaríski landsliðsmaðurinn Landon Donovan var kosinn verðmætasti leikmaður LA Galaxy á síðasta tímabili NordicPhotos/GettyImages
Í dag varð ljóst að enski knattspyrnumaðurinn David Beckham mun ganga í raðir Los Angeles Galaxy í amerísku atvinnumannadeildinni næsta sumar. Það er því ekki úr vegi að skoða aðeins sögu félagsins, sem er eitt tíu upprunalegra atvinnumannaliðanna í MLS deildinni. Lið LA Galaxy er annað tveggja atvinnumannaliða í Los Angeles og spilar heimaleiki sína í Carson. Nafn liðsins vísar til frægra Hollywoodstjarnanna sem búa í borginni og spilar liðið í grænum og gulum búningum. Bandaríska atvinnudeildin, MLS, var stofnuð árið 1996 og hefur lið LA Galaxy verið eitt sigursælasta liðið í stuttri sögu deildarinnar. Fimm sinnum hefur liðið leikið til úrslita um meistaratitilinn og sigraði það árið 2002 og 2005. Síðasta keppnistímabil er hinsvegar það lélegasta í sögu liðsins og komst það ekki í úrslitakeppnina það árið. Ekkert lið í MLS fær til sín jafnmarga áhorfendur og LA Galaxy, en liðið hefur dregið til sín tæplega 22.000 áhorfendur að meðaltali á leik síðan deildarkeppnin hófst fyrir rúmum áratug. Þekktasti stuðningsmaður LA Galaxy ku vera skemmtikrafturinn Drew Carey sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur eru að góðu kunnir. Stuðningsmannaklúbbar liðsins eru tveir og kalla sig Galaxians og LA Riot Squad. Lukkudýr liðsins er geimvera í frosklíki sem kallar sig Cozmo. Það var strax í október á síðasta ári sem gamla landsliðshetjan Alexi Lalas sagðist hafa áhuga á að fá David Beckham til liðsins, en það þótti á sínum tíma ansi mikil bjartsýni. Enginn hlær þó í dag og er fimm ára samningurinn sem David Beckham skrifaði undir í dag metinn á 250 milljónir dollara, eða um 18 milljarða íslenskra króna. David Beckham er langstærsta stjarnan sem skrifað hefur undir samning í MLS deildinni - en hann er þó ekki stærsta nafnið til að spila í Bandaríkjunum, því Brasilíumaðurinn Pele lék þar með New York Cosmos fyrir nokkrum áratugum.
Fótbolti Mest lesið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Enski boltinn Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Fótbolti Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Golf Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Íslenski boltinn Orri Steinn fram úr Eiði Smára Fótbolti „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ Fótbolti „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Körfubolti „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Körfubolti „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Orri Steinn fram úr Eiði Smára „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ „Ekki viss hvort ég skoraði eða ekki“ „Hæð og þyngd er ekki allt í fótbolta“ „Fyrri hálfleikur líklega sá besti í sumar“ „Sárt að fá á sig sigurmark í lokin“ „Þóttumst vita að við myndum ekki vinna hvern einasta leik“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 3-2 | Dramatískur endurkomusigur hjá Valsmönnum Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Uppgjör: Þór Ak. - ÍA 1-2 | Lárus sótti sigur í Þorpið Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum 18 ára Tómas skoraði fyrstu deildarmörkin og fagnaði titlinum Uppgjörið: KR - Fram 2-2 | Gestirnir jöfnuðu á síðustu stundu Keflavík - Stjarnan 1-1| Stjarnan slapp með stig frá Keflavík í skemmtilegum leik Glæsimark fyrirliðans kveikti í endurkomu Vestra Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Stefán missti af umspilinu með grátlegum hætti „Við munum standa þétt við bakið á Ingvari“ Glódís fékk góða hvíld fyrir hátíðarmóttökuna í ráðhúsinu Højlund skoraði í sigri sem tryggði honum samning hjá Napoli Þjálfari Juventus pirraður á fagnandi Alberti Uppgjörið: ÍBV - Víkingur R. 0-2 | Víkingar reimdu markaskóna í síðari hálfleik Mourinho fór taplaust í gegnum tímabilið: „Framtíð mín mun ráðast í vikunni“ Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Gísli Gotti varð Póllandsmeistari annað árið í röð Sjá meira