Fyrsta olíuhreinsistöðin á Íslandi sett upp í Bolungarvík 26. september 2007 18:45
Bolvíkingar ætla að setja upp fyrstu olíuhreinsistöðina á Íslandi í miðjum kaupstaðnum en rannsóknir standa nú yfir á hagkvæmni olíuvinnslu í Bolungarvík. Ekki er um að ræða hefðbundna olíuhreinsistöð heldur á að vinna eldsneyti úr fiskúrgangi. Slóg úr fiski fer gjarnan til ónýtis og tapast þar mikil orka eða olía sem fólgin er í þessu hráefni sem einnig má nýta í aðrar afurðir, eins og áburð. Bolvíkingar ætla nú að ráðast í að ná verðmætum úr slóginu en Bjarni Páll Ingason hefur unnið að verkefnum með Bolungarvíkurkaupstað til að nýta slógið. Segja má að með þessum aðgerðum Bolvíkinga sé að vissu leyti verið að raungera áform Vestfirðinga um að reisa olíuhreinsistöð í fjórðungnum. Grímur Atlason, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir að með auknu framlagi til vísinda og rannsókna megi gera sjávarútveginn enn umhverfisvænni en hann er í dag auk þess sem afurðir verði til úr hráefni sem áður var hent. Grímur segir að fullvinnsla á slógi geti auk þessa nýst sem fóður í fiskeldi og í dýrar heilsuvörur. Hann telur að sóknarfæri séu veruleg fyrir vörur unnar úr þessu hráefni. Um 12 hundruð tonn falla til árlega af slógi hjá Bolvíkingum, af því er á annan tug prósenta fiskifita sem má breyta í eldsneyti. Nýtanleg dísel olía(bio-dísel) úr þessu magni er því nálega 200 tonn sem dugar fyrir nær alla handfærabáta í Bolungarvík á einni sumarvertíð. Þess má geta að maís, bygg og hveiti hækkaði á tímabili um meira en fjórðung vegna aukinnar eftirspurnar. Sú spurn er að mestu til komin vegna aukinnar framleiðslu á eldsneyti úr þessum hráefnum. Af þessum sökum má ætla að slóg verði dýrt í framtíðinni eins og aðrir orkugjafar.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira