Pólitískar ástæður að baki hótun Útlendingastofnunar 26. september 2007 18:30
Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna og lögmaður segist ekki sjá annað en að pólitískar ástæður liggi að baki hótun Útlendingastofnunar um brottvísun breskrar stúlku úr landi en hún hefur tekið þátt í mótmælum Saving Iceland. Eins og fram kom í fréttum okkar í gær hefur lögreglan farið fram á það við Útlendingastofnun að Miriam Rose, liðlega tvítugri breskri stúlku verði vísað úr landi. Stúlkan hlaut nýverið dóm fyrir að klifra upp í burðarvirki á vinnusvæði Bectel á Reyðarfirði en hún sat af sér sekt með 8 daga vist í fangelsi. Stúlkan, sem er trúlofuð íslenskum pilti, fékk nýverið bréf frá Útlendingastofnun þar sem fjallað er um mögulega brottvísun og bann við endurkomu til Íslands. Í bréfinu frá Útlendingastofnun kemur meðal annars fram að vísa megi útlendingi úr landi ef háttsemi hans felur í sér raunverulega og nægjanlega alvarlega ógn gagnvart grundvallarþjóðfélagssjónarmiðum. Atli Gíslason, lögmaður, segir að ef samræmi ætti að vera í störfum Útlendingastofnunar ætti stofnunin að vísa úr landi fjölmörgum Pólverjum sem verða uppvísir að því að aka undir áhrifum víns og skapa með því mikla hættu. Atli segist ekki sjá annað en að pólitískar ástæður liggi að baki þessari hótun Útlendingastofnunar um brottvísun stúlkunnar úr landi.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira