Hafdís Huld orðin pródúser 7. janúar 2005 00:01
Eins og alltaf fylgir Fókus með DV á föstudögum. Í blaðinu í dag mæta nokkur partýljón með myndir og sögur frá áramótunum, en Fókus lét þau fá einnota myndavélar til að skrásetja ruglið, þar er viðtal við brasilíska barþjóninn George Leite, sem er einn af framgöngumönnum sundknattleiks hér á landi, farið ítarlega í fyrirbærið mp3-blogg og gefnir miðar á kvikmyndina Oldboy. Einnig er viðtal við Hafdísi Huld, sem er að gefa út plötu og orðin pródúser. Þá er djammkortið á sínum stað og margt, margt fleira ... Huldumey sem flýgur hátt Hafdísi Huld Þrastardóttur muna flestir eftir. Vera hennar og brottför úr Gus-Gus voru mjög áberandi á sínum tíma. Svo lék hún líka stór hlutverk í Íslenska draumnum og Villiljósi. En það hefur ekki mikið borið á henni undanfarið. Fókus náði tali af Hafdísi þegar hún var stödd hér á landi í jólafríi, eins og svo margir flognir Íslendingar. Það er ekki skrítið að maður hafi ekki heyrt mikið af Hafdísi. Hún hefur búið í London í fjögur og hálft ár ásamt kærastanum sínum, Henry Þór Reynissyni, sem er kökugerðarmaður hjá Harrods. "Það er bara allt gott að frétta af mér," segir Hafdís þegar Fókus náði henni, rétt áður en hún flýgur aftur til London. Í bresku sjónvarpi "Síðustu tvö og hálft ár hef ég verið að syngja í hljómsveitinni FC Kahuna. Með mér í bandinu eru strákar sem kalla sig John og Dan Kahuna og við erum að semja danstónlist sem er nokkurs konar rafræn tölvutónlist. Við kláruðum tónleikatúr í byrjun 2004 og við höfum fengið mjög góðar móttökur. Við höfum komið fram í breskum sjónvarpsþáttum og það er nóg að gera. Við erum að fara í stúdíó í byrjun janúar og erum að fara að taka upp nýja plötu hjá Skint records. Fyrst átti FC Kahuna bara að vera samstarf í stuttan tíma en það gekk bara svo vel að við sáum enga ástæðu til að hætta þessu." Var bara mjög heppin Hafdís er í tveggja ára háskólanámi í útsetningu og upptökustjórn í London Center of Contemporary Music. Það má teljast mikið afrek hjá stelpunni að komast inn þar sem einungis 15 manns komast þar inn á ári. "Ég fór bara í gegnum öll inntökuprófin, sem voru allskyns próf í tónfræði, hljómfræði og söng. Auk þess kom ég með upptökur af því sem ég hafði gert. Ég var bara mjög heppin,"segir Hafdís .... Afganginn af viðtalinu, auk djammkortsins, boðsmiða á Oldboy, partýmynda frá áramótunum og fjölda annars efnis má finna í Fókus, sem fylgir DV í dag.
Menning Mest lesið Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Lífið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Lífið Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Sjá meira