Í mál eftir að hafa ekki fengið að slíta samningi sínum við Búmenn Aðalsteinn Kjartansson skrifar 12. febrúar 2015 12:58 Hjördís Birna Hjartardóttir lögmaður sér um að reka málið fyrir hönd íbúans fyrrverandi. Vísir/Pjetur
Annað mál af þremur þar sem fyrrverandi íbúi hjá Búmönnum fer fram á endurgreiðslu vegna ofgreiddra búsetugjalda er tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið snýst um ofgreiðslur sem komu til vegna þess að Búmenn neituðu íbúa að slíta samningi sínum við félagið. Fyrir liggur að það var ekki heimilt. Félagið segist ekki hafa burði til að greiða fólki til baka búseturéttinn.Banna fólki að segja upp samningiSamkvæmt upphaflegum samþykktum félagsins áttu félagsmenn sem keyptu búseturétt kost á að segja upp búseturéttarsamningi með sex mánaða fyrirvara og og fá greitt til baka það gjald sem þeir lögðu í búseturéttinn, svokallað tryggingargjald. Þetta ákvæði í samþykktunum var afnumið árið 2007. Fréttablaðið fjallaði um málið í mars á síðasta ári. Félaginu hefur hins vegar mátt vera það ljóst að óheimilt sé að meina félagsmönnum að segja upp samningi allt frá því árið 2013. Það ár sendi félags- og tryggingamálaráðherra forsvarsmönnum húsnæðissamvinnufélagsins bréf þar sem þetta kom fram. Þrátt fyrir það hefur félagsmönnum gengið illa að fá sig lausa. Hjördís Birna Hjartardóttir lögmaður segir að konan fari einnig fram á að fá greidda út tryggingu sem hún lagði fram þegar hún gerði samning um aðild að Búmönnum. Upphæðin nemur 3-4 milljónum króna.Hvað er Búmenn?Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn var stofnað 1998 en það á í dag 540 íbúðir í 13 sveitarfélögum, samkvæmt yfirliti á heimasíðu félagsins. Félagið er aðeins fyrir fyrir fimmtíu ára og eldri og er í eigu félagsmanna. Flestar íbúðirnar eru í Reykjavík, Akranesi, Garði í Gerðahreppi, Akureyri, Reykjanesbæ og Hveragerði. Félagið á einnig íbúðir í Grindavík, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri, Kópavogi, Sandgerði og Vogum. Segja má að félagið standi á brauðfótum en allir sjóðir þess eru tómir og það getur ekki staðið við skuldbindingar sínar. RÚV greindi frá því í lok janúarmánaðar að Íbúðalánasjóður hafi samþykkt að afskrifa hálfan milljarð vegna 63 íbúða, færa þær í leigufélag í eigu Búmanna og frysta afborganir í þrjú ár.
Mest lesið „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Innlent Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Innlent Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Erlent Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Sjá meira