Innlent

Chevrolet frá Hermanni Jónassyni í uppáhaldi

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Lárus Sigfússon fagnaði hundrað ára afmæli sínu fimmta febrúar.
Lárus Sigfússon fagnaði hundrað ára afmæli sínu fimmta febrúar. VÍSIR/GVA
Lárus Sigfússon, fyrrverandi forseta-og ráðherrabílstjóri, lagði bíllyklana á hilluna rétt fyrir hundrað ára afmæli sitt fyrr í mánuðinum. Hann segist alla tíð hafa verið mikill bílaáhugamaður og hefur átt hátt í tvöhundruð bíla í gegnum tíðina. Lárus starfaði sem ráðherrabílstjóri í alls tuttugu og eitt ár, lengst af fyrir Steingrím Hermannsson, en einnig keyrði hann Kristján Eldjárn, Kjartan Jóhannsson og fleiri. Hann segir þá alla hafa verið ágætismenn, þrátt fyrir mismunandi stjórnmálaskoðanir. 

Eftir að Lárus lét af störfum hjá ráðuneytunum keypti hann jörð í Fljótshlíð þar sem hann stundaði búskap í tíu ár ásamt syni sínum. Þá flutti hann í Hvassaleitið í Reykjavík þar sem hann kynntist konu sinni, Kristínu Gísladóttur, og hafa þau búið þar saman síðan. Lárus segir að þau eigi saman fleiri afkomendur en hann getur talið, en það var ekki síst vegna þeirra sem hann ákvað að hætta að keyra.

„Ég lofaði þeim að endurnýja ekki aftur ökuskírteinið. Að komast svona í gegnum öll þessi ár áfallalaust, þá væri ekki gott að lenda í einhverju alvarlegu áfalli, bæði fyrir mig og þau,“ segir hann.

Lárus hefur átt á annað hundruð bifreiðir í gegnum ævina, en þann fyrsta eignaðist hann árið 1933. Hann starfaði einnig sem leigubílstjóri um árabil og segist vera mikill áhugamaður um bíla, en hann dundaði sér við ýmiskonar bílaviðgerðir allt þar til hann seldi sinn síðasta bíl rétt í nóvember síðastliðnum. Aðspurður segir hann að uppáhaldsbílinn hans hafi verið gamall Chevrolet.

„Það var síðasti Chevrolet-bíllinn hans Hermanns Jónassonar forsetisráðherra. Ég fékk hann hjá honum þegar hann hætti að nota hann, og þá fékk hann sér bara Volvo í staðinn. Það var nú þegar hann var eiginlega hættur í pólitík“.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×