Chevrolet frá Hermanni Jónassyni í uppáhaldi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 12. febrúar 2015 19:30 Lárus Sigfússon fagnaði hundrað ára afmæli sínu fimmta febrúar. VÍSIR/GVA
Lárus Sigfússon, fyrrverandi forseta-og ráðherrabílstjóri, lagði bíllyklana á hilluna rétt fyrir hundrað ára afmæli sitt fyrr í mánuðinum. Hann segist alla tíð hafa verið mikill bílaáhugamaður og hefur átt hátt í tvöhundruð bíla í gegnum tíðina. Lárus starfaði sem ráðherrabílstjóri í alls tuttugu og eitt ár, lengst af fyrir Steingrím Hermannsson, en einnig keyrði hann Kristján Eldjárn, Kjartan Jóhannsson og fleiri. Hann segir þá alla hafa verið ágætismenn, þrátt fyrir mismunandi stjórnmálaskoðanir. Eftir að Lárus lét af störfum hjá ráðuneytunum keypti hann jörð í Fljótshlíð þar sem hann stundaði búskap í tíu ár ásamt syni sínum. Þá flutti hann í Hvassaleitið í Reykjavík þar sem hann kynntist konu sinni, Kristínu Gísladóttur, og hafa þau búið þar saman síðan. Lárus segir að þau eigi saman fleiri afkomendur en hann getur talið, en það var ekki síst vegna þeirra sem hann ákvað að hætta að keyra. „Ég lofaði þeim að endurnýja ekki aftur ökuskírteinið. Að komast svona í gegnum öll þessi ár áfallalaust, þá væri ekki gott að lenda í einhverju alvarlegu áfalli, bæði fyrir mig og þau,“ segir hann. Lárus hefur átt á annað hundruð bifreiðir í gegnum ævina, en þann fyrsta eignaðist hann árið 1933. Hann starfaði einnig sem leigubílstjóri um árabil og segist vera mikill áhugamaður um bíla, en hann dundaði sér við ýmiskonar bílaviðgerðir allt þar til hann seldi sinn síðasta bíl rétt í nóvember síðastliðnum. Aðspurður segir hann að uppáhaldsbílinn hans hafi verið gamall Chevrolet. „Það var síðasti Chevrolet-bíllinn hans Hermanns Jónassonar forsetisráðherra. Ég fékk hann hjá honum þegar hann hætti að nota hann, og þá fékk hann sér bara Volvo í staðinn. Það var nú þegar hann var eiginlega hættur í pólitík“.
Tengdar fréttir Seldi bílinn 100 ára og keypti sér skutlu Lárus Sigfússon fyrrum ráðherrabílstjóri hætti að keyra í nóvember. 12. febrúar 2015 08:00 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira
Seldi bílinn 100 ára og keypti sér skutlu Lárus Sigfússon fyrrum ráðherrabílstjóri hætti að keyra í nóvember. 12. febrúar 2015 08:00