Spjalda­súpa er Aston Villa stal stigunum undir lok leiks

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mike Dean var upptekinn í kvöld.
Mike Dean var upptekinn í kvöld. Tim Keeton/Getty Images

Það stefndi í markalaust jafntefli í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Aston Villa fékk hins vegar vítaspyrnu undir lok leiks sem Anwar El-Ghazi skoraði úr vítaspyrnu. Dómari leiksins var þó að mestu í sviðsljósinu.

Leikurinn var ágætlega leikinn en Mike Dean, dómari leiksins, var í aðalhlutverki. Emi Martinez átti nokkrar góðar markvörslur í marki Aston Villa og það sama má í raun segja um Rui Patricio í marki heimamanna.

Dean hins vegar lyfti alls 11 gulum spjöldum í leiknum sem og tveimur rauðum. Douglas Luiz fékk sitt annað gula spjald á 85. mínútu og þar með rautt. Á 95. mínútu fór Joao Moutinho, miðjumaður Wolves, sömu lið.

Þar á milli kom sigurmarkið en Nelseon Semedo braut þá klaufalega af sér í eigin vítateig og gaf Villa vítaspyrnu. El-Ghazi fór á punktinn og skoraði af öryggi. Staðan orðin 1-0 gestunum í vil og reyndust það lokatölur.

Sigurinn lyftir Aston Villa upp í 8. sæti deildarinnar með 18 stig. Wolves er í 11. sæti með 17 stig eftir að hafa leikið tveimur leikjum meira.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira