Tónlist

Bríet frumflutti plötuna með ljósasýningu undir stjörnubjörtum himni í Krýsuvík

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Söngkonan Bríet gaf út persónulega plötu um helgina, um erfið hjartasár sem hún segi að grói hægt.
Söngkonan Bríet gaf út persónulega plötu um helgina, um erfið hjartasár sem hún segi að grói hægt. Sigurður Erik-Hlynur Hólm

„Ég byrjaði að semja plötuna í byrjun mars á þessu ári. þetta er búið að líða eins og fimm ár en líka eins og þrír dagar,“ segir sönkonan Bríet Ísis Elfar sem gaf út nýja plötu um helgina, Kveðja Bríet. Hún frumflutti plötuna með bílahlustun í yfirgefinni naumu í Krýsuvík.

„Ég er að leggja hjartað mitt beint á borðið fyrir þig að skoða og sjá hvernig það lítur út og hvernig það pumpar blóði,“ segir söngkonan um þessa persónulegu plötu í samtali við Vísi. Höfundar plötunnar eru Bríet og Pálmi Ragnar Ásgeirsson. Lagið hennar Esjan er eitt vinsælasta lag ársins 2020 og fylgir hún því á eftir með fyrstu breiðskífunni sem hefur fengið góð viðbrögð.

Bríet hélt einstakan viðburð í Krýsuvík.Bríet

Djúp sár gróa hægt

„Það er mjög sterk tilfinning á bakvið textana. Þeir segja allir mjög skýrt hvernig mér líður og hefur liðið seinustu mánuði. Mér finnst djúp sár gróa hægt vera titill lífs míns akkúrat núna. Ég verð bara að bíða og sjá.“

Hægt er að hlusta á lagið Rólegur kúreki í spilaranum hér fyrir neðan en platan í heild sinni er komin á Spotify og Youtube. 

Hún segir að heimsfaraldurinn hafi verið tilfinningamikill tími. „Þetta ár er allt búið að vera einn stór stormur ég er er þarna í miðjunni að reyna að koma niður á jörðina. Þessir mánuðir hafa bara gert mér gott, þó ég sé atvinnulaus þá er ég búin að fá að líta inn á við og fara í göngutúr og semja plötu og knúsa mömmu og ég er mjög þakklát fyrir það.“

Bríet skaust upp á stjörnuhimininn 2018 og hefur haldið áfram að heilla fólk síðan þá. Tónlist hefur alltaf verið hluti af lífi Bríetar en hún fór að spila á gítar 12 ára. Þegar hún var 15 ára gömul var hún farin að syngja „off venue“ á Iceland Airwaves og hefur í raun ekki stoppað síðan. Bríet segir að það sé fólk hafi alltaf mikil áhrif á hana sem tónlistarkonu.

Bríet lýsti upp stjörnubjartan himininn í Krýsuvík.Hlynur Hólm

„Ég myndi segja að það sem hefur mótað mig mest er pabbi minn og samtöl við allskyns fólk. Ég læri svo mikið á því að kynnast nýjum röddum og heyra nýjar sögur.“

Hjörtun slógu í takt við lögin

Kveðja Bríet kom út á miðnætti á föstudag en Bríet hélt persónulegan útgáfuviðburð á föstudag fyrir nánustu fjölskyldu og vini í yfirgefinni námu í Krýsuvík.

Frá Krýsuvík á föstudagBríet

Viðburðurinn var utan dyra og hver og einn hlustaði á plötuna í eigin bíl, til að virða tilmæli sóttvarnarlæknis vegna heimsfaraldursins. Platan var send út í heild sinni á K100 svo gestir gátu setið í bílunum sínum og notið þess að hlusta og upplifa frumflutninginn með söngkonunni og fylgt leiðbeiningum um sóttvarnir. 

Platan Kveðja Bríet kom út á miðnætti 10.10.2020.Bríet

„Ég vildi að allir gætu komið hættulausir og notið þess að hlusta á plötuna með mér og horft á sýningu á meðan. Ég var með lazera og eldvörpur og bara nefndu það. Vikar Máni hjálpaði mér að gera þetta ógleymanlegt, stjörnubjartur himinn og hjörtu sem slógu í takt við tónlistina. Gæti ekki verið þakklátari.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×