Innlent

Svona var fjórði upp­lýsinga­fundurinn vegna kórónu­veirunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá blaðamannafundinum á föstudaginn.
Frá blaðamannafundinum á föstudaginn. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 14 vegna kórónuveirunnar.

Um er að ræða fjórða blaðamannafundinn sem boðað hefur verið til, fjórða virka daginn í röð.

Meðal þeirra sem taka til máls á fundinum verða fulltrúar frá Læknavaktinni sem fara yfir verkferla hjá þeim.

Fundurinn verður sem fyrr í beinni útsendingu á Vísi auk þess sem honum verða gerð góð skil í vaktinni hér að neðan, fyrir þá sem ekki hafa færi á að hlusta.

Uppfært klukkan 15

Fundinum er lokið en upptakan er aðgengileg hér að neðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×