Innlent

Verkfall BSRB skollið á: Einn af mörgum kjarasamningum undirritaður

Samúel Karl Ólason og Jóhann K. Jóhannsson skrifa
Frá undirritun samningsins.
Frá undirritun samningsins. Vísir/Jóhann

BSRB hefur undirritað einn kjarasamning við samninganefnd hins opinbera. Samningur þessi nær til allra bæjarstarfsmanna, utan Reykjavíkur. Önnur verkföll eru skollin á, í samræmi við aðgerðaráætlun aðildarfélaga BSRB.

Viðræður munu standa yfir fram á nótt vegna annarra samninga.

Aðgerðaráætlunina má sjá hér, á vef BSRB. Samningurinn sem hefur verið undirritaður nær yfir efsta liðinn, þann grænbláa. Sá nær til um 7.500 af þeim sextán þúsund sem áttu að fara í verkfall á miðnætti.

Verkföll munu hafa áhrif á skólastarf. Þá er búið að veita starfsfólki á Landspítalanum og heilsugæslustöðvum undanþágu vegna nýju kórónuveirunnar.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir mörg stéttarfélög sveitarfélaga í samfloti kalla sig Bæjastarfsmannafélögin. Þau hafi samið við Samband íslenskra sveitarfélaga.

„Þetta er verulega ánægjulegur áfangi,“ segir Sonja. Samningurinn gildir til 31. mars 2023.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.Vísir/Sigurjón

Verið er að semja um styttingu vinnuviku við dagvinnufólk og vaktavinnufólk og eru það stórtíðindi að mati Sonju. Þetta hafi ekki breyst hjá opinberum starfsmönnum í um fimmtíu ár.

„Þannig að við teljum þetta merkan áfanga og erum búin að stefna að þessu lengi hjá BSRB og aðildarfélögin staðið þétt að baki þessarar kröfu.“

Einnig er verið að semja um fleiri atriði eins og 30 daga orlof fyrir alla og 90 þúsund króna hækkun á kjarasamningstímabilinu.

„Það eru mörg góð atriði í þessum samningi,“ segir Sonja.

Varðandi nóttina segir hún að verið sé að vinna hörðum höndum að því að semja við borgina og segist Sonja vonast til þess að það klárist í nótt. Ekki sé mikið á milli deiluaðila.

Mun lengra sé þó á milli samningsaðila þegar komi að viðræðunum við ríkið.

Efling og hið opinbera skrifuðu undir kjarasamninga um helgina en viðræður á milli Eflingar og Reykjavíkur standa enn yfir.

Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og formaður BSRB-nefndar Bæjarstarfsmannafélaganna.Vísir/Jóhann

Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og formaður BSRB-nefndar Bæjarstarfsmannafélaganna, segir að samningurinn sem var undirritaður skili sömu krónutölu og Lífskjarasamningarnir svokölluðu. Þeim hafi ekki verið raskað.

„Þetta er búið að taka sinn tíma og ýmsar uppákomur á leiðinni. Þannig að það er mikill léttir að vera búinn að þessu,“ segir Arna Jakobína. Umfangsmiklu verkfalli hafi verið afstýrt. „Þannig að þetta er örugglega mikill léttir víða um landi, að það er ekki verkfall á morgun.“

Arna Jakobína segir stóra þáttinn í þessum samningi vera styttingu vinnuvikunnar. Það hafi mikil áhersla verið lögð á það.

Nú verður farið í að kynna samninga fyrir félagsmönnum og það þarf að gerast fyrir 23. mars.

Þau félög sem hafa undirritað kjarasamninginn og aflýst verkföllum gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga eru:

Kjölur, stéttarfélag í almannaþjónustu

Sameyki, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu

Samflot bæjarstarfsmannafélaga f.h. eftirtalinna stéttarfélaga,

Félag opinberra starfsmanna á Austarlandi

Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu

Starfsmannafélag Fjallabyggðar

Starfsmannafélag Fjarðabyggðar

Starfsmannafélag Húsavíkur

Starfsmannafélag Vestmannaeyja

Samstarf 6 bæjarstarfsmannafélaga f.h. eftirtalinnna stéttarfélaga,

FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Starfsmannafélag Kópavogs

Starfamannafélag Mosfellsbæjar

Starfsmannafélag Suðurnesja


Tengdar fréttir

Klukkan tifar í Karphúsinu

Fundað er í hverju hverju herbergi í húsnæði Ríkissáttasemjara. Fólk gengur á milli herbergja enda allra leiða leitað til þess að afstýra verkfalli sextán þúsund félagsmanna BSRB sem hefst á miðnætti.

Styttist í verkföll

Verkföll nærri sextán þúsund félagsmanna BSRB skella á á miðnætti náist ekki samningar hjá deiluaðilum fyrir þann tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×