Austfirðingar segja Reykjavík afsala sér hlutverki höfuðborgar 25. janúar 2012 12:15 Mynd/Pjetur
Samband sveitarfélaga á Austurlandi segir í bréfi til forsætisráðherra ljóst að Reykjavíkurborg muni afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna, verði af áformum borgarstjórnar að leggja af Reykjavíkurflugvöll og nauðsynlegt sé að hefjast þegar handa um breytingar á opinberri stjórnsýslu. Austfirðingar hafa jafnframt sent borgarstjóranum í Reykjavík afrit af erindinu sem og fleiri ráðherrum og þingmönnum Norðausturkjördæmis. Tilefnið er fréttir af áformum Reykjavíkurborgar að loka norður-suður braut Reykjavíkurflugvallar árið 2016 eða eftir fjögur ár. Samband sveitarfélaga á Austurlandi vill að stjórnvöld bregðist nú þegar við til að mæta þessum áformum enda verði flugvöllurinn óstarfhæfur með aðeins einni flugbraut og eina raunhæfa lausnin, að Reykjavíkurflugvelli frátöldum, sé Keflavíkurflugvöllur. Verði miðstöð innanlandsflugsins flutt til Keflavíkur muni ferðatími verða svo langur og ferðakostnaður það mikill að óásættanlegt verði að sækja opinbera þjónustu með sama hætti og nú sé gert til Reykjavíkur. Því sé óhjákvæmilegt að opinber þjónusta og stjórnsýsla utan höfuðborgarsvæðisins verði efld og í sumum tilfellum byggð upp frá grunni á landsbyggðinni. Austfirðingar segja ljóst að gangi framangreind áform eftir muni Reykjavíkurborg þar með afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna. Þar sem fjögur ár séu skammur tími til undirbúnings slíkra breytinga fer Samband sveitarfélaga á Austurlandi fara fram á að stjórnvöld hefjist nú þegar handa við undirbúning þeirra breytinga á stjórnsýslu og opinberri þjónustu sem lokun flugvallarins krefjist.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira