84 prósent af 4000 Ipod-spilurum voru keyptir erlendis 25. janúar 2012 20:58
84 prósent iPod Nano-spilara, sem voru afturkallaðir hér á landi í nóvember á síðasta ári, voru keyptir í útlöndum. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna Ákason, framkvæmdastjóri hjá Epli.is, sem selur Apple vörur. Við hann var rætt í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem þetta kom fram. Tölvurisinn Apple innkallaði upprunalega útgáfu iPod Nano í nóvember eins og fyrr segir. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kom fram að eldhætta stafaði af rafhlöðu spilarans. iPod Nano kom á markað árið 2005. Epli.is bárust fjögur þúsund tæki af umræddri gerð. Þar af höfðu 84 prósent verið keypt erlendis. Bjarni segir þetta sýna að háir skattar á muni eins og iPod skili sér í erlenda ríkiskassa. Nú horfir hinsvegar öðruvísi við því skattar á iPod-spilara voru lækkaðir í desember. Og salan hefur snaraukist að sögn Bjarna. „Hlutfallið var líklega þannig að 20 prósent slíkra tækja voru keypt hér á landi fyrir lækkun. Nú hefur það sennilega snúist við," segir Bjarni sem er sáttur við stöðuna. Hann segir þó ríkið ekki vera búið að læra af mistökum sínum. Þannig sé búið að stórhækka skatta á tölvuskjái. „Nú er litið svo á að tölvuskjáir séu einfaldlega sjónvörp," segir Bjarni. Hægt er að hlusta á viðtalið við Bjarna í Reykjavík Síðdegis hér.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira