Sýndarsjúklingurinn Hermann á ferð og flugi á morgun 20. febrúar 2009 13:14 Sýndarsjúklingurinn Hermann stendur í ströngu á morgun.
Sýndarsjúklingurinn Hermann verður fluttur frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi á morgun með sjúkrabifreið yfir á Háskólatorg. Flutningarnir munu verða strax upp úr hádegi og má reikna með ýmsum uppátækjum í Hermanni. Eins og gefur að skilja má reikna með að slíkur flutningur reyni mjög á Hermann sem getur rétt eins þóst fá mikla verki og jafnvel að hann fái fyrir hjartað blessaður, segir Jón Örn Guðbjartsson, markaðs- og kynningarstjóri Háskóla Íslands. „Fari svo að hjartað í Hermanni stöðvist, sem er alveg eins líklegt, er sem betur fer hersing hjúkrunarfræðinga og lækna til staðar í Háskólatorgi vegna námskynningarinnar í Háskólanum á morgun," segir Jón Örn. Hann segir að sjúkraflutningamennirnir séu líka sérmenntaðir til að glíma við bráðatilvik og muni þeir án efa sýna snör viðbrögð. „Ég hvet alla til að koma og fylgjast með því hvernig bráðaliðið mun í heild sinni bregðast við uppgerðinni í Hermanni, en hann leikur þetta svo vel blessaður að það lætur nærri að hann sé lifandi... og dauður," segir Jón Örn. Annars segir Jón Örn að á bak við Hermann búi talsverð alvara þótt það megi líka brosa af tilburðum hans. Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands notar Hermann, sem er afar flókið tæki og eftirlíking af manni og/eða konu í fullri líkamsstærð, til að meðhöndla óteljandi sjúkdóma. „Þetta er bylting í kennslu hjúkrunarfræðinema," segir Þórana Elín Dietz, starfsmannastjóri Heilbrigðisvísindasviðs HÍ. Hún ber hag allra starfsmanna heilbrigðisvísindasviðsins fyrir brjósti og Hermanns auðvitað líka þar sem hann starfar á hennar snærum. „Fólk fær tækifæri til að æfa sig á sýndarsjúklingi og læra af mistökum sínum áður en það fer út á stofnanir," segir Þórana Elín. Kannski að gestir í HÍ á laugardag fái að æfa sig eilítið á Hermanni, hver veit.
Tengdar fréttir Hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni Hjúkrunarfræðinemar munu hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni á Háskóladeginum sem fram fer í Háskóla Íslands næstkomandi laugardag. Hermann er nýtt verkfæri, brúða í fullri líkamsstærð sem getur kveinkað sér undan sýndarverkjum. Þá hefur hæfileiki Hermanns til að skipta um kyn einnig vakið athygli þeirra sem með hann hafa sýslað. 16. febrúar 2009 14:42 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira
Hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni Hjúkrunarfræðinemar munu hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni á Háskóladeginum sem fram fer í Háskóla Íslands næstkomandi laugardag. Hermann er nýtt verkfæri, brúða í fullri líkamsstærð sem getur kveinkað sér undan sýndarverkjum. Þá hefur hæfileiki Hermanns til að skipta um kyn einnig vakið athygli þeirra sem með hann hafa sýslað. 16. febrúar 2009 14:42