Bankarnir sýna Alþingi óvirðingu 20. febrúar 2009 12:29 Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kvartaði undan því á Alþingi í morgun að enn hafi ekki borist svör við tveggja mánaða gamalli fyrirspurn frá henni um bifreiðahlunnindi fyrrverandi og núverandi starfsmanna bankanna. Hún sagði bankanna sýna Alþingi óvirðingu. Eygló Harðardóttir lagði fyrirspurn fyrir fyrrverandi fjármálaráðherra um bifreiðahlunnindi starfsmanna hjá ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækjum hinn 19. desember síðast liðinn. Þar spurði hún hversu margir bankastarfsmenn gömlu og nýju bankanna væru á bifreiðum frá bönkunum hinn 1. desember, sundurliðað eftir bönkum. Þá spurði hún hversu margir fyrrverandi starfsmenn bankanna væru á slíkum bílum og hver skattaleg hlunnindi væru af þessum bílum. Þá vildi hún einnig fá að vita hver tæki ákvörðun um hver nyti bifreiðahlunninda og hvort hlunnindi sem þessi tíðkuðust í öðrum opinberum stofnunum. Eygló sagði að einungis hefðu borist svör frá Glitni, þar sem 30 starfsmenn nytu bifreiðahlunninda. Hún sagði að ljós hafi komið að Kaupþing væri ,,á fullu" að losa sig við bílaflota bankans og að Landsbankinn hafi ekki enn svarað. Eygló sagði að Alþingi væri sýnd óvirðing ,,Það eru algjörlega óásættanleg vinnubrögð af hendi stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins að sýna Alþingis þessa óvirðingu. Ég verð að spyrja; Hvað er svona hræðilegt í þessu máli? Hvað er verið að fela?" Guðbjartur Hannesson forseti Alþingis segist hafa gengið eftir því með formlegum hætti að fyrirspurninni yrði svarað og hann muni halda áfram að ýta á eftir svari, sem kynni að hafa dregist vegna stjórnarskiptanna. Þá lýsti Álfheiður Ingadóttir formaður viðskiptanefndar því yfir að nefndin muni einnig taka þetta mál upp.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Leita flugmanns eftir flugslys við Mýrdalsjökul Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Segist hafa áhyggjur af stöðunni í Evrópu Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Sjá meira