Tottenham lenti undir gegn Gylfa og félögum en vann | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. febrúar 2016 16:00
Tottenham heldur í við Leicester í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa unnið 2-1 sigur á Swansea á heimavelli sínu í dag. Swansea komst reyndar yfir með marki Alberto Paloschi á nítjándu mínútu en þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið eftir að hann kom í janúar. En Tottenham tryggði sér sigur með mörkum þeirra Nacer Chadli og Danny Rose á síðustu 20 mínútum leiksins og er því enn tveimur stigum á eftir Leicester á toppi deildarinnar. Fram að því hafði Lukasz Fabianski varið nokkrum sinnum glæsilega í marki Swansea. Arsenal er enn í þriðja sæti en er nú þremur stigum á eftir Tottenham eftir tap liðsins gegn Manchester United í dag, 3-2. Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn gegn sínu gömlu félögum í Swansea og hann fékk frábært færi strax á fjórðu mínútu eftir undirbúning Paloschi. Hugo Loris, markvörður Tottenham, varði hins vegar glæsilega frá honum. Gylfi átti svo tvær tilraunir að marki úr aukaspyrnum en náði ekki að skora á sínum gamla heimavelli. Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Tottenham sem hefur ekki orðið enskur meistari síðan 1960. Liðið er með besta markahlutfall allra liða í ensku deildinni og getur með þessu áframhaldi gert harða atlögu að meistaratitlinum í vor.Chadli jafnar: Rose kemur Spurs yfir:
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Fleiri fréttir Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Sjá meira