Velferðarsamfélagið byggir á samkeppni 11. september 2009 06:00 Frá kynningarfundi Samstarf norrænu samkeppniseftirlitanna hefur staðið í fimmtíu ár.fréttablaðið/gva „
Virk samkeppni er ein grunnforsenda þess að hægt sé að viðhalda norrænu velferðarkerfi,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins (SE). „Stefnumörkun okkar gengur út á að menn megi ekki leiðast út í að horfa á skammtímahagsmuni einstakra fyrirtækja heldur verði að horfa á langtímahagsmuni samfélagsins.“ Þetta er meðal niðurstaðna norrænna samkeppniseftirlita í sameiginlegri skýrslu sem tekur á álitamálum samkeppnisumhverfis á tímum efnahagsþrenginga. Forsvarsmenn norrænu samkeppniseftirlitana funda nú í Reykjavík og byggja á samstarfi sem hófst fyrir fimmtíu árum. „Skammtímalausnir eru oft vandamál morgundagsins,“ segir Páll Gunnar. Hann minnir á að efnahagskreppur fyrri tíma hafi kallað á viðbrögð sem hafi dregið áhrif þeirra á langinn. Meðal þeirra aðgerða var verndarstefna og veiking samkeppnisreglna. Í skýrslunni er því lögð þung áhersla á að dreginn sé lærdómur af reynslu genginna kynslóða. Í aðgerðum gegn kreppunni verði að hafa hliðsjón af áhrifum þeirra á samkeppni. Slíkt verði gert strax frá upphafi þannig að ekki þurfi að vinda ofan af aðgerðum sem skaði samkeppni, til langvarandi tjóns fyrir neytendur og samfélagið í heild. Eftir hrunið sendi SE stjórnvöldum og fjármálafyrirtækjum samantekt yfir þau atriði sem hafa þyrfti í huga í því umhverfi sem hér hefði skapast. Stjórnvöld tóku tillit til þessara atriða í eigendastefnu ríkisins. „Stjórnvöld hafa því tekið þetta upp í sinni stefnumörkun,“ segir Páll Gunnar. „Við höfum síðan fylgt þessu eftir varðandi bankana og þeir eru að feta sig áfram. Við höfum gert athugasemdir, til dæmis um að þeir setji upp skýrar vinnureglur svo fólk hafi trú á því að samkeppnisreglur séu virtar.“ Ljóst er að öll samkeppniseftirlitin hyggjast draga skýra línu. „Við þessar aðstæður getur verið freistandi fyrir stór fyrirtæki að nýta sér, og jafnvel misnota, ráðandi stöðu á markaðnum. Samkeppnisyfirvöld á Norðurlöndunum munu ekki umbera brot á samkeppnislögunum,“ sagði Dan Sjöblom, forstjóri sænska samkeppniseftirlitsins, þegar skýrslan var kynnt í gær.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slasaðs einstaklings Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Sjá meira