Borgarbúar hafa nægar byrðar að bera 22. desember 2008 22:52 Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Auknar álögur á borgarbúa eru ekki góð leið til að bregðast við þeim aðstæðum sem nú ríkja í efnahagslífinu, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi borgarstjórnar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að útsvar og fasteignagjöld verði ekki hækkuð. „Við teljum að þegar við gáfum út aðgerðaráætlun í október þar sem við hétum því að við myndum ekki varpa þessum efnahagsþrengingum yfir á íbúa í formi þess að taka af þeim hærri gjöld að þá höfum við gefið þau fyrirheit að skattar yrðu ekki hækkaðir, segir Hanna Birna. „Auk þess sem við teljum að íbúar og fyrirtæki í borginni hafi nægar byrðar að bera þó borgarstjórn bæti skattahækkunum ekki við," segir Hanna Birna. Fulltrúar minnihlutans gagnrýndu þessar áætlanir meirihluta borgarstjórnar í dag. Hanna Birna segir að þrátt fyrir þessa andstöðu þeirra við það að hækka ekki skatta hafi samstarfið um alla meginþætti áætlunarinnar gengið afar vel og skilað góðum árangri. Hanna Birna segir að þetta sjónarmið minnihlutans komi ekkert á óvart og ráðist einfaldlega af ólíkri sýn fulltrúa í borgarstjórn á það hvaða aðferðum best sé að beita við gerð fjárhagsáætlana. „Þau eru samkvæm sinni pólitísku sannfæringu þegar þau leggja til að skattar verði hækkaðir við þessar aðstæður," segir Hanna Birna. Hanna Birna segir að í gegnum þá miklu vinnu sem unnin hafi verið á undanförnum mánuðum við fjárlagafrumvarpið hafi náðst fram hagræðing upp á rúma sex milljarða. Borgarstjórn hafi verið að skoða stjórnkerfið, hvort spara mætti í innkaupum og hvort hægt væri að bíða með einhver verkefni. Auk þess komi til lækkun á launum æðstu embættismanna borgarinnar og endurskoðun á yfirvinnu. „Ég held að frumvarpið sýni að það er vel að hægt að ná fram umtalsverðri hagræðingu án þess að skerða grunnþjónustu við íbúa ," segir Hanna Birna. Loks segir Hanna Birna að verið sé að skoða framtíðarplön varðandi tónlistar- og ráðstefnuhúsið við höfnina en ákvarðanir verði teknar öðru hvoru megin við áramótin.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira