Innlent

Sjálfstæðismenn gera ekki breytingar á ríkisstjórn um áramót

Geir Haarde forsætisráðherra útilokar ekki breytingar á ríkisstjórninni.
Geir Haarde forsætisráðherra útilokar ekki breytingar á ríkisstjórninni.

Það er ekki á döfinni að gera breytingar á ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins um áramótin, segir Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Sölva Tryggvason, ritstjóra Íslands í dag. Hann segist jafnframt ekki eiga von á því að slíkar breytingar verði gerðar fyrir landsfund flokksins sem haldinn er síðustu helgina í janúar. Geir útilokar þó ekki að breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni áður en kjörtímabilið er á enda.

Geir segir að vegna efnahagshrunsins muni lífskjörin sennilegast fara 2-3 ár aftur í tímann. „Við erum að vonast til þess að við náum okkur í gegnum þessa niðurstöðu tiltölulega hratt," segir Geir. Hann bendir á að árið 2009 verði mjög erfitt en hann vonist til að hægt verði að sjá ljósið árið 2010.

„Þetta hefur farið mjög vel af stað með krónuna, sem er forsenda þess að verðbólga fari niður og þar af leiðandi að vextirnir geti lækkað," sagði Geir. Hann sagði jafnframt að vonandi væri hægt að fara að slaka á höftum með fjármagnsviðskipti fljótlega eftir áramót. Geir ítrekaði jafnframt áskorun sína um að auðmenn, sem ættu eignir í útlöndum, kæmu með fjármagn sitt heim.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×