Innlent

Fjárlagafrumvarpið samþykkt

Fjárlagafrumvarpið var samþykkt nú undir kvöld.
Fjárlagafrumvarpið var samþykkt nú undir kvöld.

Alþingi samþykkti nú undir kvöld fjárlög fyrir árið 2009. Árni Mathiesen fjármálaráðherra sagði við atkvæðagreiðsluna að þetta hefði verið einhver erfiðasta fjárlagavinna sem um gæti enda hrun bankanna að baki og kreppa um allan heim. Samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir liðlega 150 milljarða halla á fjárlögum. Árni Mathiesen sagði að árið 2009 yrði líklegast erfiðasta ár kreppunnar og að mikilvægt væri að dýpka hana ekki. Þá hefur Alþingi jafnframt samþykkt lög um breytingu á eftirlaunum æðstu embættismanna ríkisins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×