Lífið

Eyjan.is opnar innan skamms

Þeir félagar standa saman að nýjum fréttavef sem opnaður verður innan skamms á vefslóðinni eyjan.is.
Þeir félagar standa saman að nýjum fréttavef sem opnaður verður innan skamms á vefslóðinni eyjan.is.

Eyjan.is er nafnið á nýjum fréttamiðli sem opnaður verður á vefnum innan skamms. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á laugardag standa þeir Andrés Jónsson og Pétur Gunnarsson, sem báðir hafa verið virkir bloggarar, að miðlinum.

„Undirbúningurinn gengur vel og við erum vongóðir um að þetta verði að veruleika innan skamms,“ segir Pétur en vill lítið láta uppi um innihald síðunnar. Auk Péturs og Andrésar kemur Jón Garðar Hreiðarsson að rekstri fréttamiðilsins en hann er viðskiptafræðingur að mennt og sjálfstætt starfandi rekstrarráðgjafi.

Pétur og Andrés hafa verið virkir bloggarar síðustu mánuði. Pétur hefur haldið úti heimasíðunni hux.blog.is en Andrés hefur haldið úti bloggi á slóðinni godsamskipti.blog.is sem og vef­svæðinu ordid.blog.is. Þá hafa þeir báðir starfað sem pólitískir ráðgjafar, Pétur meðal annars fyrir Framsóknarflokkinn en Andrés fyrir Samfylkinguna.

Pétur vill ekki gefa mikið uppi um efni síðunnar en leiða má líkur að því að um einhvers konar fréttablogg verði að ræða. Á heimasíðu sinni segist Pétur lengi hafa fylgst með erlendum fjölmiðlum á netinu og fylgst daglega með bandarísku fréttabloggi. Ekki hefur verið ákveðið hvenær miðillinn opnar en vefslóðin er eyjan.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.