Innlent

Vatnsleki kom upp um kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að við húsleit á áðurnefndum stað hafi fundist um 60 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 23 kg.

„Á sama stað var jafnframt lagt hald á um 800 grömm af kannabisefnum. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar. Upphaf málsins má rekja til tilkynningar um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið fyrst kvatt á staðinn. Uppruna lekans var að finna í ræktunaraðstöðunni en þar hafði vatnsleiðsla gefið sig. Miklar skemmdir urðu á nokkrum íbúðum hússins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×